Milliríkjasamningar

Markmið milliríkjasamninga er að stuðla að því að einstaklingar tapi ekki áunnum réttindum við flutning milli samningsríkjanna.

Samið er  við önnur ríki og erlendar tryggingastofnanir um gagnkvæman rétt til þeirra hlunninda er almannatryggingar veita.

Ísland hefur gert milliríkjasamninga um almannatryggingar við mörg erlend ríki og tryggingastofnanir. Í þeim er meðal annars kveðið á um greiðslur bóta til einstaklinga er búa erlendis, fjallað um hvernig taka eigi tillit til búsetu,- atvinnu-, eða tryggingatíma sem áunnist hafa í öðrum samningsríkjum, jafnræði ríkisborgara samningsríkjanna og fleira.

Samningarnir geta verið misjafnir að efni.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica