Hverjir eru sjúkratryggðir?

Þeir sem búsettir hafa verið hér á landi og hafa verið það að minnsta kosti síðustu sex mánuðina áður en bóta er óskað úr sjúkratryggingum teljast sjúkratryggðir.

Sjúkratrygging er ávallt háð því að öllum skilyrðum laga sé fullnægt, nema annað leiði af milliríkjasamningum.

Með búsetu er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga.

Einstaklingur sem flytur lögheimili sitt úr landi nýtur því ekki lengur sjúkratryggingar á Íslandi. Íslenskur ríkisborgararéttur er því ekki skilyrði fyrir og veitir ekki rétt til sjúkratrygginga.

Önnur skilyrði um réttindi geta verið í milliríkjasamningum.

Hvað þýðir það að vera sjúkratryggður?

Sjúkratryggðir greiða lægra gjald til læknis og minna fyrir lyf, hjálpartæki, þjálfun og njóta margvíslegrar annarrar aðstoðar.

Börn yngri en 18 ára sem búsett eru hér á landi eru sjúkratryggð með foreldrum sínum. Sama á við um stjúpbörn og fósturbörn. Miðað er við skráningu í Þjóðskrá.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica