Flutningur til Íslands
Allir sem hafa verið búsettir hér á landi í sex mánuði teljast sjúkratryggðir af hinu opinbera. Þeir hafa því rétt á niðurgreiðslu af heilbrigðisþjónustu. Þeir sem flytja til Íslands þurfa að tilkynna lögheimilisflutning til Þjóðskrár.
Þeir einstaklingar sem flytja á milli landa bera ábyrgð á því að skráning þeirra sé rétt hjá viðkomandi yfirvöldum.
Einnig þarf sá sem hingað flytur að tilkynna um skráningu í tryggingaskrá.
Flutningur frá Norðurlöndum
Þegar flutt er til Íslands frá Norðurlöndunum þarf að skila inn E104 vottorðinu (sjá fyrir neðan) og getur viðkomandi þá orðið sjúkratryggður frá komudegi í Þjóðskrá.
Hafir þú búið á öðru Norðurlandi í styttra en eitt ár er hægt að sækja um undanþágu frá því að skila inn E104 vottorði.
Gagnlegar upplýsingar um flutninga milli Norðurlanda má finna á vefsíðunni Hallo Norden og norrænni vefgátt um almannatryggingar: Nordic Social Insurance Portal.
Flutningur frá EES landi
Með skráningu í tryggingaskrá þarf að berast viðeigandi E-vottorð frá tryggingastofnunum í öðru EES landi:
E-104 |
Vottorð um staðfestingu á tryggingar- og starfstímabilum í öðru EES landi Vottorð um söfnun tryggingar-, starfs- eða búsetutímabila. Unnt er að óska eftir að sex mánaða biðtíminn verði styttur eða felldur niður með því að framvísa E104. Vottorðið staðfestir tryggingu í fyrra heimalandi og er gefið út af tryggingastofnun þar. Fyrir þá sem flytja varanlega til Íslands eða byrja að vinna á Íslandi. |
E-101 |
Vottorð um hvaða löggjöf skuli gilda. Staðfesting á tryggingavernd erlendis. Fyrir þá sem vinna (tímabundið) á Íslandi, en eru áfram tryggðir skv. tryggingarlöggjöf í öðru EES landi, til dæmis útsendir starfsmenn frá EES landi. |
E-106 |
Vottorð um rétt til aðstoðar vegna veikinda meðgöngu og fæðingar handa þeim sem búa í öðru landi en lögbæru landi. Sjúkratryggingavottorð fyrir þá sem taka upp búsetu á Íslandi en eru áfram skráðir hjá sjúkratryggingum í öðru EES landi. |
E-109 |
Skráningarvottorð fyrir aðstandendur launþega eða sjálfstætt starfandi einstaklings. Sjúkratryggingavottorð fyrir þá sem taka upp búsetu á Íslandi en eru áfram skráðir hjá sjúkratryggingum í öðru EES landi, sem fjölskyldumeðlimir launþega eða lífeyrisþega. |
E-121 |
Skráningarvottorð lífeyrisþega. Sjúkratryggingavottorð fyrir þá sem eru lífeyrisþegar í öðru EES landi, en taka upp búsetu á Íslandi. |
- Næsta skref Eyðublað Skráning í tryggingaskrá
- Tengt efni Um búsetu og lögheimili
- Tengt efni Hafa samband
- Tengt efni Information in English
- Tengt efni Listi yfir EES löndin
- Tengt efni Vefur Þjóðskrár
- Tengt efni Flutningur lögheimilis hingað til lands Upplýsingar á vef Fjölmenningarseturs



