Flutningur erlendis

Tryggingavernd sjúkratrygginga á Íslandi fellur almennt niður við brottflutning ef lögheimili er flutt.

Flutningur til Norðurlandanna

Við flutning til Norðurlanda og skráningu fellur búseta niður hér á landi niður og færist til viðkomandi lands og þar með sjúkratryggingaréttindi. Að öllu jöfnu þarf ekki að skila inn E104 (vottorð um staðfestingu á tryggingar- og starfstímabilum) við flutning til Norðurlanda, nema stofnanir þess lands óski sérstaklega eftir því.

Hægt er að halda  tryggingarvernd á Íslandi ef um tímabundin störf er að ræða á vegum vinnuveitanda hér á landi.

Greiðslur almannatrygginga falla almennt ekki niður þó flutt sé til Norðurlanda. Hafa verður sambandi við Sjúkratryggingar Íslands fyrirfram þar sem reglur eru mismunandi eftir því hvaða bætur eða styrki er verið að greiða.

Flutningur til EES lands

Ef flutt er til annars EES lands gilda reglur viðkomandi lands um aðgang að tryggingarkerfinu. Þetta á einnig við ef einstaklingur byrjar að vinna í EES landi. Alltaf þarf að hafa með sér E104 vottorðið við flutning til EES lands til að halda rétti til sjúkratrygginga.

Sótt er um vottorðið á eyðublaðasíðu hér á vefnum.

Hægt er að halda  tryggingarvernd á Íslandi ef um tímabundin störf er að ræða á vegum vinnuveitanda hér á landi.

Greiðslur almannatrygginga falla almennt ekki niður þó flutt sé til annars EES lands. Hafa verður sambandi við Sjúkratryggingar Íslands fyrirfram þar sem reglur eru mismunandi eftir því hvaða bætur eða styrki er verið að greiða.

Flutningur til lands utan EES

Íslensk sjúkratrygging fellur niður ef flutt er til lands sem enginn samningur hefur verið gerður við.

Þó er hægt að halda tryggingavernd á Íslandi ef um tímabundið starf er að ræða á vegum vinnuveitanda hér á landi.

Greiðslur almannatrygginga falla niður við brottflutning til landa sem enginn samningur hefur verið gerður við um almannatryggingar.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica