Icelandic Health Insurance

Erlendir starfsmenn á Íslandi

Þeir sem hafa verið búsettir á Íslandi að minnsta kosti síðustu sex mánuðina eru sjúkratryggðir.

Með búsetu er átt við lögheimili og almennt er miðað við skráningu lögheimilis í Þjóðskrá.

Einstaklingar sem flytja á milli landa bera ábyrgð á að tilkynna flutninginn til Sjúkratrygginga Íslands. Stofnuninni þarf að berast útfyllt eyðublað um skráningu í tryggingaskrá. Ef það er ekki gert tekur sjúkratryggingin ekki gildi fyrr en sex mánuðum frá skráningu búsetu samkvæmt Þjóðskrá.

Unnt er að óska eftir að sex mánaða biðtíminn verði styttur eða felldur niður með því að framvísa vottorði sem nefnist E104. Vottorðið staðfestir tryggingu í fyrra heimalandi og er gefið út af tryggingastofnun þar.

Jafnframt geta þeir sem koma frá EES-löndum átt rétt á sjúkratryggingu ef þeir sýna fram á löglega vinnu hér á landi síðastliðna sex mánuði.

Útsendir starfsmenn til Íslands

Ríkisborgarar EES ríkis sem sendir eru til starfa tímabundið á Íslandi af vinnuveitanda sínum geta verið áfram tryggðir í almannatryggingum landsins sem komið er frá. Það er staðfest á vottorði E101 sem gefið er út hjá viðkomandi stofnun í heimalandinu og framvísa þarf Sjúkratryggingum Íslands.

Ef læknisaðstoðar er leitað eiga þeir að framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu sem þeir fá útgefið í sínu tryggingalandi.

Þeir starfsmenn sem flytja búsetu sína til Íslands eiga að hafa meðferðis sjúkratryggingavottorðið E106 og afhenda það Sjúkratryggingum Íslands. Einnig þarf að senda tilkynningu til Sjúkratrygginga Íslands. Þetta getur einnig átt við um sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Atvinnu- og dvalarleyfi

Ólíkar reglur gilda um atvinnu- og dvalarleyfi eftir því hvort fólk kemur frá ríkjum innan eða utan EES.

Útlendingastofnun sér um útgáfu atvinnu- og dvalarleyfa.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica