Atvinna erlendis

Mismunandi reglur gilda eftir því í hvaða landi er starfað. Réttindi til sjúkratrygginga fara eftir milliríkjasamningum.

Vinna í öðru EES landi

Þegar unnið er í öðru EES landi eru það almannatryggingareglur EES samningsins sem kveða á um það undir hvaða almannatryggingalöggjöf launþeginn eða hinn sjálfstætt starfandi fellur.

Unnið í einu landi

Launþegi sem vinnur aðeins í einu EES landi fellur yfirleitt undir almannatryggingalöggjöf starfslandsins.

Það gildir jafnvel þótt hann búi í öðru EES landi eins og Íslandi og einnig þótt vinnuveitandinn sé staðsettur í öðru landi en starfslandi. Sama gildir um sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Sjómenn sem vinna um borð í skipi sem siglir undir EES fána, falla undir löggjöf fánalands skipsins.

Opinberir starfsmenn

Opinberir starfsmenn falla undir sömu löggjöf og þau stjórnvöld sem þeir starfa fyrir.  Íslenskir embættismenn sem starfa erlendis innan EES fyrir íslenska ríkið falla undir íslenskar almannatryggingar.  

Vinna í tveimur eða fleiri löndum til skiptis eða samtímis

Sjómenn sem ráðnir eru á skip sem siglir undir fána aðildarríkis EES og þiggja laun fyrir þá vinnu falla að öllu jöfnu undir löggjöf fánalandsins.

Einnig eru að finna margar aðrar sérreglur er varða sjómenn þó að fánalandsreglan sé hin almenna regla.

Vinna utan EES

Þegar unnið er erlendis í landi sem ekki er aðili að EES samningum og aðrir milliríkjasamningar eru ekki í gildi við viðkomandi land, getur einstaklingur sótt um að halda almannatryggingavernd sinni á grundvelli heimildar í almannatryggingalögunum. Skilyrði eru meðal annars að viðkomandi starfi erlendis fyrir aðila sem hafi aðsetur og starfsemi á Íslandi og tryggingagjald sé greitt hér á landi af launum hans.

Heimilt er að samþykkja tryggingarvernd samkvæmt þessu í allt að eitt ár.  Að loknu fyrsta tímabilinu er heimilt  að framlengja tryggingaskráninguna í allt að fjögur ár til viðbótar. Áður en það er gert verður að meta hvort skilyrðin séu áfram uppfyllt.

Sækja skal um staðfestingu á tryggingu þessari til Sjúkratrygginga Íslands eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför af landinu. Sama umsóknareyðublað er notað og vegna E101 vottorða. 



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica