Ferðamenn erlendis

Sjúkratryggðir einstaklingar á Íslandi þurfa að huga að tryggingum sínum þegar ferðast er erlendis.

Í EES landi og Sviss

Ferðamaður í öðru EES landi nýtur ákveðinna réttinda til læknishjálpar innan hins opinbera heilbrigðiskerfis í viðkomandi landi. Einungis er átt við nauðsynlega þjónustu miðað við lengd dvalar.

Sjúkratryggingar Íslands hvetja alla til að sækja um evrópska sjúkratryggingakortið til að tryggja sér rétt til aðstoðar í viðkomandi landi.

Í landi utan EES

Ferðamaður í landi utan EES getur fengið hluta sjúkrakostnaðar síns endurgreiddan hjá Sjúkratryggingum Íslands þegar heim kemur samkvæmt ákveðnum reglum. Skila þarf þá inn frumriti reikninga ásamt staðfestingu á greiðslu.

Athugið að sjúkrakostnaður getur verið innifalinn í þeim tryggingum sem greiðslukortafyrirtæki bjóða þegar farseðlar eru greiddir með greiðslukortum.

Tryggingaryfirlýsing

Sjúkratryggingar Íslands gefa út sérstaka tryggingaryfirlýsingu til einstaklinga sem tryggðir eru hér á landi en hyggjast dvelja um styttri tíma erlendis í löndum sem eru utan EES svæðisins. Þar kemur fram að viðkomandi sé tryggður í almannatryggingum á Íslandi og hvað slík trygging felur í sér.



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica