Erlendir ferðamenn hér á landi

Erlendir ferðamenn hér á landi geta leitað til heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa ef þörf krefur. Hvernig greitt er fyrir þjónustuna fer eftir því hvort samningur sé í gildi við landið sem ferðamaðurinn kemur frá.

Frá EES landi

EES ríkisborgarar sem dvelja hér sem ferðamenn greiða sama gjald og sjúkratryggðir einstaklingar hér á landi ef þeir framvísa evrópska sjúkratryggingakortinu auk gildra persónuskilríkja sem staðfesta ríkisfang viðkomandi.

Erlendir ferðamenn frá öðrum löndum

Ríkisborgarar landa utan EES  greiða gjald fyrir þjónustuna sem ákveðið er í reglugerð um heilbrigðisþjónustu fyrir ósjúkratryggða.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica