Sérfræðilæknar

Sjálfstætt starfandi sérgreinalæknar starfa nú án samnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ).  Til að tryggja greiðsluþátttöku SÍ hefur velferðarráðuneytið sett reglugerð sem kveður á um þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum kostnaði sjúkratryggðra vegna þjónustu sérgreinalækna sem starfa án samnings við SÍ, sjá neðangreinda reglugerð og breytingar á reglugerðinni auk gjaldskráa sem tilgreina kostnaðarþátttöku SÍ í verkum sérfræðilækna. 

SÍ munu endurgreiða sjúkratryggðum mismun á heildargreiðslu skv. gjaldskrá stofnunarinnar og reiknaðs kostnaðarhluta sjúkratryggðs eins og kveðið er á um í reglugerðinni.  Ef sérgreinalæknar hækka ekki verðskrá sína umfram gjaldskrá stofnunarinnar verður hlutfall endurgreiðslu til sjúklinga það sama og verið hefur. Þó skal taka fram að einhver hluti sérfræðilækna hafa hækkað verðskrá sína umfram gjaldskrá stofnunarinnar vegna samningsleysis.

 

Rafræn sending reikninga
Til að tryggja hag sjúklinga og valda þeim sem minnstum óþægindum er sérgreinalæknum gefinn kostur á að senda reikninga sína á rafrænan hátt til SÍ.  Ef læknar senda reikninga sína á þennan hátt greiða sjúklingar einungis sinn hluta af reikningunum og þurfa ekki að óska eftir endurgreiðslu hjá SÍ.  Með rafrænum skilum og sömu verðskrá og áður eiga sjúklingar ekki að þurfa að verða varir við samningsleysið.

Endurgreiðsla reikninga hjá SÍ
Ef sjúkratryggður þarf að greiða fyrir þjónustu sérgreinalæknis að fullu getur hann óskað eftir endurgreiðslu hjá SÍ.  Umsóknareyðublað má finna hér.  Umsóknareyðublað, ásamt frumriti reiknings og staðfestingu á greiðslu hans, skal sent til Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114-118, 150 Reykjavík.  Einnig geta sjúkratryggðir snúið sér til þjónustumiðstöðvar að Laugavegi 114 eða til umboða sem eru hjá sýslumönnum um land allt.  Allar umsóknir um endurgreiðslu verða afgreiddar svo fljótt sem kostur er.  Þegar umsókn hefur verið afgreidd og sett skilyrði staðfest mun greiðsla verða innt af hendi í upphafi næsta mánaðar. Unnt er að skoða yfirlit innsendra reikninga til SÍ í Réttindagátt - mínar síður einstaklinga.

Sjá einnig upplýsingar á vefsíðu velferðarráðuneytisins.

Ítarefni

Heimild til endurgreiðslu 

Í lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008 segir að sjúkratryggingar taki til nauðsynlegra rannsókna og meðferðar hjá sérgreinalæknum sem samið hefur verið um.  Jafnframt segir að ef samningar séu ekki fyrir hendi sé í sérstökum tilfellum heimilt tímabundið að endurgreiða sjúkratryggðum útlagðan kostnað vegna heilbrigðisþjónstu á grundvelli gjaldskrár sem SÍ gefa út.  Velferðarráðherra setur í slíkum tilvikum reglugerð um framkvæmd, m.a. um tímalengd heimildarinnar og skilyrði fyrir endurgreiðslu.  


Dæmi um sérgreinar lækna:

     
 Augnlæknar  Endurhæfingarlæknar Lyflæknar
 Barnalæknar  Skurðlæknar Blóðfræðingar
 Bæklunarlæknar  Svæfingarlæknar Efnaskiptalæknar
 Geðlæknar  Krabbameinslæknar Gigtarlæknar
 Barnageðlæknar  Taugalæknar Hjartalæknar
 Háls-, nef- og eyrnalæknar  Þvagfæralæknar Lungnalæknar
 Húðlæknar  Öldrunarlæknar Meltingarlæknar
 Kvensjúkdómalæknar   Lýtalæknar Nýrnalæknar
    Ofnæmis- og ónæmislæknar


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica