Heilsugæsla

Sjúkratryggingar taka til læknishjálpar sem fer fram á heilsugæslustöðvum og hjá sjálfstætt starfandi heimilislæknum. 

Að meginreglu er gert ráð fyrir því að samskipti sjúklings og læknis hefjist hjá heilsugæslu- eða heimilislækni.

Sjálfstætt starfandi heimilislæknar eru með samning við sjúkratryggingar sem þýðir að sjúkratryggingar niðurgreiða nauðsynlega þjónustu þessara lækna á grundvelli samningsins. 

Sjúklingar greiða því það sama hvort sem heimilislæknir þeirra starfar á heilsugæslustöð eða er sjálfstætt starfandi.    

Sjúkratryggðir greiða fyrir læknisþjónustu samkvæmt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica