Læknishjálp
Á Íslandi er læknishjálp og heilbrigðisþjónusta að meginreglu veitt á heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum og á stofum sérfræðinga.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taka almennt til læknishjálpar á vegum heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa. Þá taka sjúkratryggingar til nauðsynlegra rannsókna og meðferðar hjá sérgreinalæknum skv. reglugerð en ekki hafa náðst samningar við sérgreinalækna. Sjá frekari upplýsingar um þátttöku SÍ í greiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna.
Sjúkratryggðir einstaklingar greiða fyrir læknisþjónustu samkvæmt reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu sem gefin er út af velferðarráðuneyti.
Aldraðir og lífeyrisþegar greiða almennt lægra gjald. Börn greiða lægri gjöld eða engin fyrir læknisþjónustu. Öryrkjar sýna fram á stöðu sína með framvísun skírteinis frá Tryggingastofnun. Ellilífeyrisþegar með óskertan ellilífeyri geta einnig sýnt fram á það með því að fá skírteini frá TR (grátt kort).
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 6 mánuði eða lengur og geta framvísað staðfestingu Vinnumálastofnunar þar um greiða sama gjald og lífeyrisþegar fyrir heilbrigðisþjónustu.
Þjónusta heimilislækna utan dagvinnutíma
Læknavaktin að Smáratorgi er með móttökuvakt og sér um vitjanaþjónustu frá kl. 17:00 til 24:00 alla virka daga og frá kl. 09:00 (vitjanir frá kl. 8:00) til 24:00 allar helgar og alla frídaga.
Þjónustusvæðið er heilsugæsluumdæmi Reykjavíkur (utan Kjalarness) og heilsugæsluumdæmin í Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Álftanesi og Hafnarfirði.
Jafnframt er Læknavaktin með upplýsinga- og ráðgjafarþjónusta (í síma 1770) frá kl. 17:00 til 08:00 alla virka daga og allan sólarhringinn um helgar og alla frídaga.
Tilvísun:
- Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu nr. 1175/2011- gildir frá 1. janúar 2012.
- Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu nr. 1042/2010 - gildir frá 1. janúar 2011 - 31. desember 2011
Næstu skref:
Tengt efni:
- Um endurgreiðslur mikils læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar
- Listi yfir heilsugæslustöðvar Vefur Landlæknisembættis
- Hvert á að leita? Vefur Landlæknisembættis
- Vefur Vinnumálastofnunar



