Eldri borgarar

Gráa kortið, sem gefið er út af Tryggingastofnun er skírteini sem staðfestir að viðkomandi ellilífeyrisþegi á rétt á heilbrigðisþjónustu á lægra gjaldi en almennt gerist.

Ellilífeyrisþegar, bæði 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris eiga rétt á eftirfarandi þjónustu á lægra gjaldi:

  • Komu á heilsugæslustöð,
  • komu til heimilislæknis,
  • vitjana lækna,
  • heimsókna á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa,
  • komu til sérfræðings utan sjúkrahúsa og sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa,
  • rannsókna á rannsóknarstofu,
  • geisla- og myndgreininga ( röntgenleitar) og beinþéttimælinga.

Afsláttarkort

Þeir ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem hafa gráa kortið geta einnig fengið afsláttarkort. Sjá upphæfðir sem aldraðir þurfa að greiða til að öðlast afsláttarkort.



 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica