Eldri borgarar
Gráa kortið er skírteini sem staðfestir að viðkomandi ellilífeyrisþegi á rétt á heilbrigðisþjónustu á lægra gjaldi en almennt gerist.
Ellilífeyrisþegar, bæði 67-70 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs og ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem njóta óskerts ellilífeyris eiga rétt á eftirfarandi þjónustu á lægra gjaldi:
- Komu á heilsugæslustöð,
- komu til heimilislæknis,
- vitjana lækna,
- heimsókna á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa,
- komu til sérfræðings utan sjúkrahúsa og sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa,
- rannsókna á rannsóknarstofu,
- geisla- og myndgreininga ( röntgenleitar) og beinþéttimælinga.
Afsláttarkort
Þeir ellilífeyrisþegar 67-70 ára sem hafa gráa kortið geta einnig fengið afsláttarkort. Ef einstaklingar hafa óskertan ellilífeyri greiðir fólk kr. 6.100 fyrir ofangreinda heilbrigðisþjónustu.
Þeir sem eru með skertan ellilífeyri þurfa að greiða allt upp í kr. 25.000 fyrir ofangreinda heilbrigðisþjónustu áður en afsláttarskírteini er gefið út.



