Hverjir senda ekki reikninga til SÍ?
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa skref fyrir skref fengið sendar upplýsingar frá læknastöðvum, sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum um greiðslur einstaklinga. Ekki er þörf á að einstaklingar komi greiðslukvittunum til SÍ frá þeim aðilum sem senda upplýsingar um greiðslur og komugjöld til SÍ.
Í dag eru örfáir sérgreinalæknar sem innheimta fullt gjald fyrir þjónustu og senda ekki upplýsingar um reikninga til SÍ og eins eru sjúkrastofnanir og heilsugæslustöðvar á nokkrum svæðum á landinu ekki enn farnar að senda upplýsingar til SÍ um komugjöld. Von er á að heilbrigðisstofnanirnar muni hefja sendingar til SÍ innan tíðar. Sjá frekari upplýsingar um afsláttarkort.
Listi yfir læknar og sjúkrastofnanir sem senda ekki reikninga fyrir heilbrigðisþjónustu til SÍ
Frá og með 1. janúar 2012 þurfa einstaklingar eingöngu að leggja inn kvittanir frá eftirtöldum aðilum:
Sérgreinalæknar:
- Björn Már Ólafsson augnlæknir
- Sjöfn Kristjánsdóttir lyf-meltingarlæknir
- Benedikt Ó Sveinsson kvensjúkdómalæknir
Sjúkrastofnanir og heilsugæslustöðvar á eftirtöldum stöðum á landinu:
- Vestmannaeyjum
- Suðausturland (Höfn í Hornafirði)
- Austurlandi
- Norðurlandi
- Sjúkrahús Akureyrar
- Vestfjörðum
- Vesturlandi
- Heilsugæslan á Reykjalundi
Einnig þarf að koma með kvittanir frá eftirtöldum aðilum:
- Krabbameinsfélagi Íslands vegna sérstakra rannsókna
- Heyrnar og talmeinastöðinni vegna viðtals við sérfræðing



