Afsláttarkort vegna heilbrigðisþjónustu
Ef þú ert sjúkratryggður og hefur greitt ákveðna upphæð (sjá töflu að neðan) fyrir heilbrigðisþjónustu átt þú rétt á afsláttarkorti. Ef þú ert með afsláttarkort greiðir þú minna fyrir heilbrigðisþjónustu.
Tímabilið sem veitir rétt til afsláttarkorts er frá janúar til desember. Greiðslur á árinu 2011 gefa því ekki rétt til afsláttarkorts árið 2012. Eftir áramót er byrjað að safna upp í réttindi til afsláttarkorts fyrir hvert ár.
Það er mismunandi hvað þarf að greiða mikið áður en afsláttarkortið er gefið út.
| Hverjir greiða |
Hversu mikið |
|---|---|
| Sjúkratryggðir 18-66 ára almennt |
29.500 kr. |
| Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri |
23.600 kr. |
|
- Aldraðir 70 ára og eldri - Þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri - Öryrkjar - Aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs |
7.400 kr. |
| Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu |
8.900 kr. |
Hvernig er reikningum skilað til að fá endurgreiðslu og afsláttarkort?
Þegar búið er að greiða upphæðirnar sem teknar eru fram í töflunni getur viðkomandi náð í afsláttarkort í Réttindagátt á vefnum og framvísað því næst þegar greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu. Langflestar læknastöðvar, heilsugæslur og Landspítali senda upplýsingar um greiðslur einstaklinga til SÍ sem metnar eru upp í afsláttarkort. Sjá lista yfir hverjir senda ekki upplýsingar til SÍ. Í Réttindagáttinni er hægt að fylgjast með hvaða reikningar hafa verið mótteknir hjá SÍ og hversu mikið safnast hefur upp í afsláttarkort.
ATHUGIÐ Sérgreinalæknar starfa nú án samnings við SÍ. Sjá frekari upplýsingar um endurgreiðslu og gjaldskrá SÍ vegna sérgreinalækna.
Reikningum frá þeim sem ekki senda upplýsingar til Sjúkratrygginga Íslands skal eftir sem áður safna saman og senda til þjónustumiðstöðvar eða til umboða til að fá afsláttarkort og endurgreiðslu.
En ef ég hef borgað meira?
Ef einstaklingar hafa greitt umfram ofangreind mörk og eru ekki enn komnir með afsláttarkort fá þeir þá fjárhæð endurgreidda að hluta. Upplýsingar um bankareikninga eru forsenda fyrir endurgreiðslunni. Hægt er að skrá upplýsingar um bankareikning en það er gert inni í Réttindagátt (mínar síður) undir "mínar stillingar" sjá að neðan leiðbeiningar um innskráningu. (Bent er á að sá bankareikningur sem skráður er inn hjá Sjúkratryggingum skráist einnig hjá Tryggingastofnun ríkisins, og þar afleiðandi eru allar mögulegar greiðslur frá báðum stofnunum lagðar á þann reikning).
Hvernig nálgast ég afsláttarkortið?
Nú hefur útgáfu plastkorta verið hætt og er afsláttarkortið gefið út á vefnum. Ef réttur á korti er til staðar ferð þú inn í Réttindagátt (mínar síður). Þar getur þú náð í afsláttarkortið og skoðað reikninga sem SÍ hefur móttekið sem og séð hvernig mögulegum endurgreiðslum er háttað.
Aðgangsveiting að Réttindagáttinni er þannig að notað er annað tveggja, rafræn skilríki eða veflykill RSK til innskráningar.
- Þú skráir þig með veflykli skattyfirvalda eða með rafrænu skilríki. (Upplýsingar um veflykil er á http://www.skattur.is/).
- Undir flokknum "Réttindastaðan mín" er hægt að smella á afsláttarkort og sjá hvort kort hefur verið útgefið sem og skoðað reikninga sem SÍ hefur móttekið.
- Afsláttarkortið er prentað og framvísað þegar næst er greitt fyrir heilbrigðisþjónustu.
Geta læknar séð hvort ég sé komin/n með afsláttarkort?
Hluti heilsugæslna, spítala og læknastöðva á landinu geta séð með rafrænum hætti réttindastöðu einstaklinga þegar greitt er fyrir heilbrigðisþjónustu, t.d. hvort einstaklingur hefur áunnið sér afsláttarkort. Unnið er að því að allir læknar og heilbrigðisstarfsfólk fái aðgang að slíkri uppflettingu. Sjá lista yfir aðila sem geta flett upp réttindastöðu.
- Næsta skref Sækja afsláttarkort/skoða réttindi til afsláttarkorts (innskráning í Réttindagátt mínar síður einstaklinga)
- Næsta skref Skrá upplýsingar um bankareikning (Skráð í Réttindagátt - mínar síður undir flokknum "Mínar stillingar")
- Tilvísun Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu nr. 1175/2011- gildir frá 1. janúar 2012.
- Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu nr. 1042/2010 - gildir frá 1. janúar 2011 - 31. desember 2011
- Tengt efni Hvaða greiðslur gilda upp í afsláttarkort?
- Tengt efni Hvað á ég að greiða fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu?
- Tengt efni Hverjir senda ekki greiðslukvittanir til SÍ?
- Tengt efni Hverjir fletta upp réttindastöðu einstaklinga?
- Tengt efni Hafa samband
- Tengt efni Listi yfir umboð




