Afsláttarkort vegna heilbrigðisþjónustu
Ef þú ert sjúkratryggður og hefur greitt ákveðna upphæð fyrir heilbrigðisþjónustu átt þú rétt á afsláttarkorti. Ef þú ert með afsláttarkort greiðir þú minna fyrir heilbrigðisþjónustu.
Tímabilið sem veitir rétt til afsláttarkorts er frá janúar til desember. Greiðslur á árinu 2009 gefa því ekki rétt til afsláttarkorts árið 2010. Eftir áramót er byrjað að safna upp í réttindi til afsláttarkorts fyrir hvert ár.
Það er mismunandi hvað þarf að greiða mikið áður en afsláttarkortið er gefið út.
| Hverjir greiða |
Hversu mikið |
|---|---|
| Einstaklingar 18-66 ára -og atvinnulausir skv. vottorði frá Vinnumálastofnun |
27.000 kr. |
| Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri |
21.500 kr. |
| Aldraðir 70 ára og eldri -þeir 60 til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri -öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára aldurs |
6.500 kr. |
| Öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu |
8.100 kr. |
Þegar búið er að greiða upphæðirnar sem teknar eru fram í töflunni getur viðkomandi náð í afsláttarkort á vefnum og framvísað því þegar næst þarf að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu.
Hvað þarf ég að gera?
Reikningum frá þeim sem ekki senda upplýsingar til Sjúkratrygginga Íslands skal eftir sem áður safna saman og senda til þjónustumiðstöðvar eða til umboða til að fá afsláttarkortið. Sjúkratryggingum berast upplýsingar um flestar greiðslur frá sjálfstætt starfandi sérfræðingum sem eru með samning við SÍ. Sjúkratryggingum berast ekki upplýsingar frá heimilis- eða heilsugæslulæknum eða sjúkrahúsum, nema Landsspítala. Frá Landsspítala berast nánasat öll gögn um göngudeildarþjónustu.
Reikningar þurfa að berast til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Tekið er við reikningum í pósti eða í afgreiðslu, þar sem þeir eru settir í sérstakt umslag. Ef þú ert á ferð eftir lokun þjónustumiðstöðvar er póstkassi við innganginn en þar er hægt að setja umslög með reikningum allan sólarhringinn.
En ef ég hef borgað meira?
Ef einstaklingar hafa greitt umfram 27.000 krónur og eru ekki enn komnir með afsláttarkort fá þeir þá fjárhæð endurgreidda að hluta. Endurgreitt er eftir 20. hvers mánaðar og er lagt beint inn á bankareikninga viðkomandi. Upplýsingar um bankareikninga eru því forsenda fyrir endurgreiðslunni. Hægt er að skrá upplýsingar um bankareikning hér á vefnum eða hafa samband við þjónustumiðstöð og gefa upp bankareikning.
Hvernig er afsláttarkortið?
Nú hefur útgáfu plaskorta verið hætt og er afsláttarkortið á vefnum. Ef þú ferð inn í Réttindagáttina sem er á forsíðu getur þú náð í afsláttarkortið og greiðsluskjöl.
- Þú skráir þig með veflykli skattyfirvalda í gegnum gáttina sem leiðir þig inn á þjónustusíður SÍ á skattur.is. (Upplýsingar um veflykil er á skattur.is)
- Á svæði í flokknum „Sjúkratryggingar Íslands" er afsláttarkortið. Einnig eru þar kvittanir og greiðsluskjöl frá stofnuninni vegna heilbrigðisþjónustu.
- Afsláttarkortið er prentað og framvísað þegar næst er greitt fyrir heilbrigðisþjónustu.
- Tengt efni Hvaða greiðslur gilda upp í afsláttarkort?
- Tengt efni Leiðbeiningar um hvernig ná má í afsláttarkortið á vefnum
- Tengt efni Hvað á ég að greiða fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu?
- Tengt efni Hafa samband
- Tengt efni Listi yfir umboð




