Sjúkraflug
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna sjúkraflugs.
Skilyrði fyrir styrk:
- Brýn þörf þarf að vera á á flutningi einstaklings á sjúkrahús eða frá sjúkrahúsi til heimilis eða dvalarstaðar
- Heilsu sjúklings að vera þannig háttað að ekki er hægt að flytja viðkomandi eftir venjulegum farþega- og flutningsleiðum
Sá sem fluttur er með sjúkraflugi greiðir ákveðið fastagjald.
Fylgdarmaður sjúklings
Sjúkratryggingar Íslands greiða 7/8 hluta af fargjaldi fylgdarmanns. Aðeins er greitt fyrir fylgd telji læknir hana nauðsynlega.
Sjúkraflutningur milli sjúkrahúsa
Þegar um er að ræða sjúkraflutning milli sjúkrahúsa greiðir sjúkrahúsið sem sendir sjúklinginn kostnaðinn.



