Sjúkraþjálfarar
Skráningarkerfi
Tölvukerfi ætlað sjúkraþjálfurum sem eru í rafrænum reikningsskilum við Sjúkratryggingar Íslands.
Sjúkraþjálfari sem hefur störf
Sjúkraþjálfarar sem eru að hefja störf þurfa að senda tilskilin gögn til Sjúkratrygginga Íslands og fá staðfestingu frá stofnuninni áður en störf eru hafin. Gögnin eru:
- Tilkynning um sjálfstæðan rekstur
- Afrit af löggildingu sjúkraþjálfara
- Staðfesting á sjúklingatrygging
- Staðfesting á frjálsri ábyrgðartryggingu
- Undirrituð yfirlýsing vegna tengingar við netkerfi Sjúkratrygginga Íslands
- Staðfesting landlæknis á að viðkomandi sjúkraþjálfari uppfylli faglegar lágmarkskröfur til reksturs þeirrar heilbrigðisþjónustu sem tilkynnt var um (skal liggja fyrir áður en starfssemin hefst)
Flutningur á aðra starfsstöð
Hyggist sjúkraþjálfari flytja á aðra starfsstöð þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir áður en viðkomandi hefur störf á nýjum stað.
- Tilkynning um sjálfstæðan rekstur
- Staðfesting landlæknis á að viðkomandi sjúkraþjálfari uppfylli faglegar lágmarkskröfur til reksturs þeirrar heilbrigðisþjónustu sem tilkynnt var um (skal liggja fyrir áður en starfsemin hefst á þeirri starfsstofu sem sjúkraþjálfari flytur starfsemi sína á).
- Staðfesting á frjálsri ábyrgðartryggingu
Tölfræði
- Næsta skref Eyðublað Yfirlýsing sjúkraþjálfara vegna tengingar við netkerfi Sjúkratrygginga Íslands
- Næsta skref Eyðublað Tilkynning um sjálfstæðan rekstur sjúkraþjálfara
- Næsta skref Eyðublað Yfirlit yfir reikninga sjúkraþjálfara
- Gjaldskrá sjúkraþjálfara
- Tilvísun Reglugerð nr. 1186/2011 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 721/2009 um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun.
- Reglugerð nr. 519/2011um (1.) breytingu á reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009
- Reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009
- Vinnureglur SÍ vegna sjúkraþjálfunar



