Iðjuþjálfun

Einstaklingar sem hafa hug á að nýta sér þjónustu iðjuþjálfa þurfa að afhenda viðkomandi iðjuþjálfa beiðni frá lækni.  Ekki er nauðsynlegt að senda beiðnina til Sjúkratrygginga Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna iðjuþjálfunar sem fer fram hjá Gigtarfélagi Íslands og hjá Sjálfsbjörgu Akureyri.

Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega iðjuþjálfun sem fer fram hjá ofangreindum aðilum, fyrstu 20 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til og með 66 ára sem ekki eru lífeyrisþegar.  Réttur hins sjúkratryggða á 20 skiptum varir í  365 daga talið frá fyrstu meðferð.  Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 60% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu. 

Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.

 Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 20 skiptin fyrir:

  • börn og unglinga yngri en 18 ára
  • einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
  • lífeyrisþega með tekjutryggingu

Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 20 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 80% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.

Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna nauðsynlegra meðferða umfram 30 skipti.

Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku ef nauðsyn er á fleiri en 30 skiptum. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort. 


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica