Iðjuþjálfun
Einstaklingar sem hafa hug á að nýta sér þjónustu iðjuþjálfa þurfa að afhenda viðkomandi iðjuþjálfa beiðni frá lækni. Ekki er nauðsynlegt að senda beiðnina til Sjúkratrygginga Íslands.
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna iðjuþjálfunar sem fer fram hjá Gigtarfélagi Íslands og hjá Sjálfsbjörgu Akureyri.
Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega iðjuþjálfun sem fer fram hjá ofangreindum aðilum, fyrstu 20 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili fyrir einstaklinga á aldrinum 18 til og með 66 ára sem ekki eru lífeyrisþegar. Réttur hins sjúkratryggða á 20 skiptum varir í 365 daga talið frá fyrstu meðferð. Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 60% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.
Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.
Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 20 skiptin fyrir:
- börn og unglinga yngri en 18 ára
- einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
- lífeyrisþega með tekjutryggingu
Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 20 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 80% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.
Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna nauðsynlegra meðferða umfram 30 skipti.
Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku ef nauðsyn er á fleiri en 30 skiptum. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort.
- Tengt efni Gjaldskrá iðjuþjálfunar
- Reglugerð nr. 1186/2011 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 721/2009 um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til og hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði við þjálfun.
- Reglugerð nr. 519/2011um (1.) breytingu á reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009
- Tilvísun Reglugerð um þjálfun sem sjúkratryggingar taka til nr. 721/2009



