Icelandic Health Insurance

Iðjuþjálfun

Einstaklingar sem hafa hug á að nýta sér þjónustu iðjuþjálfa þurfa að afhenda viðkomandi iðjuþjálfa beiðni frá lækni.  Ekki er nauðsynlegt að senda beiðnina til Sjúkratrygginga Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna iðjuþjálfunar sem fer fram hjá Gigtarfélagi Íslands og hjá Sjálfsbjörgu Akureyri.

Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega iðjuþjálfun  sem fer fram hjá ofangreindum aðilum, fyrstu 25 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili fyrir einstaklinga á aldrinum 18-til og með 66 ára sem ekki eru lífeyrisþegar.  Réttur hins sjúkratryggða á 25 skiptum varir í  365 daga talið frá fyrstu meðferð. Sjúkratryggingar Íslands greiða 60 % af kostnaði við nauðsynlega viðbótarþjálfun þessa hóps, umfram 25 skipti. 

Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.

Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 25 skiptin fyrir:

  • börn og unglinga yngri en 18 ára
  • einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
  • lífeyrisþega með tekjutryggingu

Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 25 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Ef nauðsyn er á fleiri meðferðum en 25 greiða Sjúkratryggingar 80% út það tímabil.

Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna nauðsynlegra meðferða umfram 25 skipti.

Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku ef nauðsyne er á fleiri en 25 skiptum. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort. 



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica