Þjálfun
Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða kostnað eða veita styrki vegna þjálfunar(Sjúkra- iðju- og talþjálfunar)
Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun á einkastofum sjúkraþjálfara fyrstu 30 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili. Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands. Ef um er að ræða þjálfun á göngudeild heilbrigðisstofnunar er sótt um viðbótarþjálfun þangað
Réttur hins sjúkratryggða á 20 skiptum helst í 365 daga talið frá fyrstu meðferð að því gefnu að viðkomandi sé með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni.
Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 60% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.
Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands og göngudeilda heilbrigðisstofnana vegna þjálfunar fer eftir gildandi reglugerð sem gefin er út af velferðarráðuneyti.
Þjálfunin verður að fara fram á stofu þjálfara sem starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands eða á göngudeild heilbrigðisstofnana.
Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.
Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 30 skiptin fyrir:
- börn og unglinga yngri en 18 ára
- einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
- lífeyrisþega með tekjutryggingu
Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands
Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 30 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Sjúkraþjálfari þarf að sækja sérstaklega um heimild til meðferða umfram 20 á hverju 12 mánaða tímabili til Sjúkratrygginga Íslands. Ef viðbótarmeðferð hefur verið samþykkt og farið er í fleiri en 30 meðferðir á 12 mánaða tímabili greiða Sjúkratryggingar 80% kostnaðar vegna meðferða umfram 30 á tímabilinu.
Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna samþykktra meðferða umfram 30 skipti.
Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku eftir 30 skiptin. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort.



