Þjálfun
Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða kostnað eða veita styrki vegna þjálfunar(Sjúkra- iðju- og talþjálfunar)
Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun á einkastofum sjúkraþjálfara fyrstu 25 skiptin á hverju 12 mánaða tímabili.
Réttur hins sjúkratryggða á 25 skiptum helst í 365 daga talið frá fyrstu meðferð að því gefnu að viðkomandi sé með beiðni um sjúkraþjálfun frá lækni.
Ef nauðsyn er talin vera fyrir fleiri skiptum en 25 þarf sjúkraþjálfari að sækja um viðbótarþjálfun til SÍ ef um er að ræða þjálfun á einkastofu. Ef um er að ræða þjálfun á göngudeild heilbrigðisstofnunar er sótt um viðbótarþjálfun þangað. Ef viðbótarþjálfun á stofu er samþykkt greiða Sjúkratryggingar Íslands 60% kostnaðarins út árið.
Greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga Íslands og göngudeilda heilbrigðisstofnana vegna þjálfunar fer eftir gildandi reglugerð sem gefin er út af heilbrigðisráðuneyti.
Þjálfunin verður að fara fram á stofu þjálfara sem starfar samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands eða á göngudeild heilbrigðisstofnana.
Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.
Greidd eru 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun fyrstu 25 skiptin fyrir:
- börn og unglinga yngri en 18 ára
- einstaklinga með umönnunarkort frá Tryggingastofnun
- lífeyrisþega með tekjutryggingu
Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% kostnaðar vegna fyrstu 25 meðferða aldraðra og lífeyrisþega án tekjutryggingar. Ef viðkomandi á samþykktar fleiri meðferðir en 25 greiða Sjúkratryggingar 80% út það tímabil.
Fyrir lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu greiða Sjúkratryggingar 90% vegna samþykktra meðferða umfram 25 skipti.
Lífeyrisþegar með fulla tekjutryggingu fá 100% greiðsluþátttöku eftir 25 skiptin. Þetta á einnig við um börn og einstaklinga með umönnunarkort.



