Hjálpartæki

  • Nýtt húsnæði Hjálpartækjamiðstöðvar

Hjálpartæki

Sjúkratryggingar Íslands annast afgreiðslu á hjálpartækjum samkvæmt ákveðnum reglum og sjá um endurnýtingu tækjanna.

Í hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands er veitt ráðgjöf og upplýsingar um hjálpartæki og val á þeim. Þar má nálgast leiðbeiningar og fræðslu varðandi hjálpartæki.

Sjúkratryggingar Íslands annast uppsetningu, breytingar, sérsmíði og aðstoð við aðlögun hjálpartækja fyrir notendur eða tryggja að aðrir aðilar annist það. Starfsfólk hjálpartækjamiðstöðvar sér þar að auki um viðhald og viðgerðir á hjálpartækjum í eigu Sjúkratrygginga Íslands eftir að ábyrgð seljanda er útrunnin.

SÍ tekur jafnframt virkan þátt í þróun hjálpartækja og þjónustu vegna þeirra, bæði í innlendum og erlendum verkefnum.

Í Hjálpartækjamiðstöð er hægt að fá ráðgjöf starfsmanna varðandi hjálpartæki.  Ef óskað er eftir ráðgjöf frá iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara er æskilegt að panta tíma fyrirfram til að tryggja það að þeir geti sinnt erindinu. Hjálpartækjamiðstöð er einnig með þjónustu á Kristnesi í Eyjafirði, sjá nánar hér neðar á síðunni. Að auki leitast Hjálpartækjamiðstöð til við að safna og veita upplýsingar hvar hægt er að fá ráðgjöf um hjálpartæki annars staðar á landinu.

Vinsamlegast athugið að hjálpartækjamiðstöð annast ekki uppsetningu á stuðningsstöngum, bað- eða salernishjálpartækjum hvort sem um er að ræða tæki frá hjálpartækjamiðstöð eða seljendum.

Hjálpartækjamiðstöð:

Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík.
Sími: 515 0100

Afgreiðslutími frá 10:00- 15:30 virka daga.
Símatími iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara í einingu tæknilegra hjálpartækja er frá kl. 10:00 - 12:00 alla virka daga og á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 13:00 - 14:00.

Þjónusta á Kristnesi Eyjafirði

 
Aðstaða hjálpartækjamiðstöðvar SÍ á Kristnesspítala í Eyjafirði gefur tækifæri á að sýna og gefur notendum á svæðinu kost á að prófa ýmis hjálpartæki.

Starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu og notendur hjálpartækja geta pantað tíma og fengið ráðgjöf um hjálpartæki í aðstöðunni á Kristnesi.

Hafdís Hrönn Pétursdóttir og Kristín Vilhjálmsdóttir iðjuþjálfar á Kristnesspítala sinna þjónustunni.

Meðal þeirra hjálpartækja sem hægt er að skoða/prófa eru ýmis smáhjálpartæki, göngugrindur, hjólastólar og sessur. Nánari upplýsingar um hjálpartækin er að fá í símatíma eða í gegnum tölvupóst.

Símatími iðjuþjálfa er á mánudögum kl. 11:30 – 12:00    í síma 463-0399

Tekið er við skilaboðum á símsvara á öðrum tímum.

Einnig er hægt að senda þeim tölvupóst á netfangið hjalpartaeki@fsa.is.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica