Ríkisborgarar EES

 

Ríkisborgarar EES eiga rétt á að fá heilbrigðisþjónustu, sem er nauðsynleg á meðan þeir dvelja hér á landi tímabundið, á sama verði og sjúkratryggðir einstaklingar hér á landi sbr. reglugerð nr. 1206/2008. Þessum  aðilum dugir að framvísa persónuskilríkjum (með mynd) sem staðfesta ríkisfang ásamt gildu ES-korti. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að á skilríkjunum komi fram ríkisfang, nationality. Athugið að í sumum ríkjum er vegabréf eina gilda persónuskilríkið sem uppfyllir þessi skilyrði.

Koma til sérfræðilækna. Ferðamenn geta sótt um endurgreiðslu á reikningum vegna komu til sérfræðilækna utan samnings til Sjúkratrygginga Íslands en þá þarf að fylgja fylgiskjal með reikningum fyrir einstaklinga sem njóta réttinda skv. milliríkjasamningum:  Einstaklingar geta einnig sótt um endurgreiðslu þegar heim er komið.


 


Language:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica